Lýsing
Fjólubláa Scrub Mommy er frábær þrifa svampur sem samblanda af merkilegu hugviti sem gerir það að verkum að hún er með betri svömpum sem þú finnur. Ástæðan er sú að hún breytir um áferð eftir því hvað þú ert að gera og á hinni hliðinni dregur hún í sig mikinn vökva. Hún er því einstaklega nothæf í allar tegundir af þrifum á heimilinu, hvort sem að um er að ræða erfið eða létt þrif.
Scrub Mommy er samblanda af ,,FlexTexture” og “ResoFoam” en Scrub Daddy á einkaleyfi á þessu. Það gerir hana jafn einstaka og hún er.
Það helsta um Scrub Mommy:
- Tvöföld virkni – skrúbbar og dregur í sig
- Aðlagar sig að þínum þrifum
- Stíf í köldu vatni fyrir erfitt skrúbb, mjúk í heitu vatni fyrir auðveldari skrúbb
- Dregur í sig 6x meira magn af vökva en sambærilegar vörur
- Myndar mikið af froðu með lítilli sápu
- Þægilegt að halda á henni og beita henni – Munnurinn þrífur báðar hliðarnar á hnífapörunum í einni hreyfingu
- Það er hægt að skola allar agnir úr henni, hún lyktar ekki og auðvelt er að hreinsa hana með vatni einu saman
- Rispar ekki yfir 20 mismunandi yfirborð*
HVERNIG SKAL ÞRÍFA | Til að sótthreinsa og þrífa Scrub Mommy vel, settu svampinn í efstu hillu uppþvottavélarinnar eða bleyttu hana örlítið og settu í örbylgjuofninn í 1 mínútu.
Alveg eins og Srub Daddy þá skaust Scrub Mommy upp á stjörnuhimininn í gegnum þáttinn Shark Tank. Svamparnir báðir eru nú ein af vinsælustu og eftirsóttustu þrifavörum heims. Scrub Mommy hefur gert garðinn frægan á Instagram síðu Mrs. Hinch. Við mælum með því að skoða öll þau ráð sem hún hefur upp á að bjóða.
Þessi einstaki svampur býr yfir þeim hæfileika að þrífa vel eingunis með vatni, þannig að þú getur sleppt öllum sterkum þrifefnum og um leið minnkað notkun eiturefna á þínu heimili. Plús, svampurinn hefur farið í gegnum prófanir og hefur Scrub Mommy sannað að það kemur engin vond lykt af henni í allt að 8 vikur. Þrátt fyrir að svampurinn virki harður viðkomu (sérstaklega í köldu vatni) þá rispar hann ekki sem gerir hann virkilega nothæfan og besta þrifafélaga heimilisins!
Við mælum með að þið skoðið bloggið okkar ,, 20 hlutir sem þú vissir ekki að Scrub Daddy gerir” til að þú getir notað þennan þrifafélaga á sem allra besta máta!
Scrub Mommy er svampur margra hæfileika og algjör þúsundþjalasvampur. Einn af hennar hæfileikum er að rispa ekki yfirborð. Scrub Mommy hefur farið í gegnum ýmsar rannsóknir og prófanir til að sýna fram á að ,,FlexTexture” tæknin rispi ekki.
*Rannsóknir sýna fram á að hann rispi ekki eftirfarandi yfirborð: Akrýl, ál, bíla lakk, cast iron pönnur, keramik, króm, kopar, kristal, glerung, trefjagler, gler, granít, leður, kalkstein, marmara, klísturlausa húðun, olíu nuddað brons, kopar, postulín, sápustein, ryðfrítt stál, travertín, vínyl, tré og kvars. Til að vera öruggur er mælt með að prófa svampinn fyrst á minna yfirborði.