Frí sending á næsta afhendingarstað Dropp ef verslað er fyrir 7500 kr eða meira.

Hver erum við?

Vefsíðan okkar er: https://scrubdaddyisland.is.

Hreinn Jónsson ehf, 600509-1520, Klettakór 1A, [email protected]
Hreinn Jónsson ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Afgreiðslutími er 1-2 virkir dagar. Lokað er hjá okkur um helgar og vörur sem pantaðar eru á þeim tíma eru afgreiddar næsta virka dag. Þegar um sérstök tilfelli eru um að ræða, bætist við 1 virkur dagur ofan á afhendingartímann. Slík tilfelli eru álagstímar svo sem í kringum afslætti eða mánaðarmót. Hreinn Jónsson reynir að afgreiða pantanir eins hratt og fljótt og auðið er og afhenda Dropp þær pantanir. Þegar Hreinn Jónsson afhendir Dropp vörurnar gilda flutningsskilmálar Dropp og afhendingartími sem þeir gefa upp.
 
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar og reyna að finna aðra lausn á, hvort sem það er að endurgreiða alla sendinguna eða þann hluta sem ekki er til á lager. Samkomulag við viðskiptavin skiptir einu og öllu í því samhengi.
 
Öllum pöntunum er dreift af Dropp og gilda ábyrgðar- og flutningsskilmálar þess.  Hreinn Jónsson ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hreinn Jónsson ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.


Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp.
 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 7 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.


Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.
 
 

Greiðslumátar:

Hægt er að greiða með öllum helstu debet- og kreditkortum.
 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.