Lýsing
Eraser Daddy 10x er eins konar öflugt strokleður sem hægt er að nota á margan hátt. Það hreinsar til dæmis krot og rispur á hinum ýmsu stöðum á heimilinu þínu alveg eins og hið týpíska strokleður, nema í formi svamps og öflugri. Þessi svampur er tvöfaldur og endist 10x betur og lengur en sambærilegur svampur og hægt er að nota hann aftur og aftur. Það sem gerir hann framúrskarandi er að á bakhliðinni er að finna svamp úr sama efni og Scrub Daddy. Þá er hægt að nudda með strokleðrinu og þrífa með svampinum
Hversu þreytandi er þegar svampar rifna eftir eina notkun? Tja, okkur finnst það allavegana og þess vegna tókum við inn þennan svamp. Hann endist 10x lengur og er 10x sterkari.
Við trúum því að veggirnir eigi ekki að segja fleiri sögur en myndirnar sem hanga á þeim. Fjarlægðu krot og minni ummerki af veggjum og öðrum sambærilegum flötum á heimilinu.
Það helsta um Eraser Daddy:
- Virkar með vatni
- Sami svampur á bakhliðinni og er í Scrub Daddy
- Gerðu gúmmí-ið á skónum aftur hvítt
- 10x sterkari og endist 10x lengur
- Þrífðu krot af veggjum
Kemur í fjórum litum.
Einnig hægt að ná fram gljá á stöðum eins og flísum og gleri. Gerðu gúmmí á Converse-skóm aftur hvítt
VARÚÐ: Ekki nota Eraser Daddy á líkama eða húð, því það getur valdið ertingu og núning. Haltu Eraser Daddy úr fjarlægð frá börnum og dýrum. Ekki leyfa börnum og dýrum að borða Eraser Daddy. Yfirborð sem ekki má nota Eraser Daddy á eru eftirfarandi: mjúkt plast, húðun, fullunninn eða óunnin viður, bifreiðalakk, ryðfrítt stál, kopar, leður eða bera húð. Notið ekki með klóri eða hreinsiefnum. Notir þú Eraser Daddy á yfirborð sem ætlað er mat eða matseld, skaltu hreinsa það yfirborð vel til að losa allar leifar af strokleðrinu.