Frí sending á næsta afhendingarstað Dropp ef verslað er fyrir 7500 kr eða meira.
  1. HVER ERUM VIÐ?

    Vefsíðan okkar er: https://scrubdaddyisland.is.

    Hreinn Jónsson ehf, 600509-1520, Klettakór 1A, [email protected]
    Hreinn Jónsson ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

    AFHENDING VÖRU

    Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Dropp og gilda ábyrgðar- og flutningsskilmálar þess.  Hreinn Jónsson ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
    Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hreinn Jónsson ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

    VERÐ Á VÖRU OG SENDINGAKOSTNAÐUR

    Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp.

    AÐ SKIPTA OG SKILA VÖRU

    Veittur er 7 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
    Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

    GÖLLUÐ VARA

    Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.

    GREIÐSLUMÁTAR:

    Hægt er að greiða með öllum helstu debet- og kreditkortum.

    TRÚNAÐUR (ÖRYGGISSKILMÁLAR)

    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

    LÖG OG VARNARÞING

    Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.