-
HVER ERUM VIÐ?
Vefsíðan okkar er: https://scrubdaddyisland.is.
Hreinn Jónsson ehf, 600509-1520, Klettakór 1A, info@scrubdaddyisland.isHreinn Jónsson ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.AFHENDING VÖRU
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Dropp og gilda ábyrgðar- og flutningsskilmálar þess. Hreinn Jónsson ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hreinn Jónsson ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.VERÐ Á VÖRU OG SENDINGAKOSTNAÐUR
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp.AÐ SKIPTA OG SKILA VÖRU
Veittur er 7 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.GÖLLUÐ VARA
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga.GREIÐSLUMÁTAR:
Hægt er að greiða með öllum helstu debet- og kreditkortum.TRÚNAÐUR (ÖRYGGISSKILMÁLAR)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.LÖG OG VARNARÞING
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Scrub Daddy Ísland
Hreinn Jónsson ehf.
Síðumúli 27, 108 Reykjavík
Ísland